10janúar
SKO......... jólin búin og allt..... Ég hætt í vinnunni (atvinnulaus aumingi) OG ég maja og unnur vorum að panta okkur ferð til KÓNGSINS KÖBENHAVN........... jebeibííííí... Við ætlum að fara 18 apríl, þá eru tónleikar með sálinni og stuðmönnum.... snilldin ein!!! Það verður semsagt gist á hótel stefán (bróðir Unnar) DRUKKIÐ og verslað kannski lítið.....
..........................VILDI BARA LÁTA YKKUR VITA.....................
BLÆ
13desember
ÉG Á AFMÆLÍ DAG... ÉG Á AFMÆLÍ DAG... ÉG Á AFM...
Takk fyrir kveðjurnar Yndislegu vinir
11desember
Já einsog flestir vita styttist óðum í STÓR afmælið mitt
Loksins verð ég jafn gömul jafnöldrum mínum
3 dagar í þetta allt saman... 25 ára og ekki gengin út...YNDISLEGT....heh.........
Það eru smá breytingar á partý haldinu... ég ákvað að færa veisluna af Players og yfir á Klapparholt 7 í hafnarfirði..... og byrjar þetta allt saman 16 des kl:20:00......18:00 ef Ásdís mætir... þið vitið hvað ég á við
Hlakka til að sjá ykkur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
08desember
Ég hef það svona nett á tilfinningunni að maja sé eitthvað að misskilja HÁR tískuna....
EÐA HVAÐ FINNST YKKUR???
02desember
Jiiiiiiiminn ég á ekki til orð!!!!!!!! sjö Comment..... Ótrúlegt hvað fólk tekur við sér! Ég fékk meirað seigja comment alla leið frá Vestmannaeyjum... Jáhh geri aðrir betur!!! Annars gengur lífið einsog í sögu.... Ég er bara heima alla daga með Arndísi lilju.. hún er alltaf lasin... Var samt að pæla í að fara á Nasa í kvöld með Rósý og Maju... Langar svooooo að anda að mér fersku lofti....Svo er ég nottla að reynað NEIÐA Kollu með í kvöld..hún þykist vera orðin svo stapíl... en við sem þekkjum hana vitum betur.... JÁ talandi um að vera stapíl... Doktor Sigríður með meiru keypti sér nýtt mottó um daginn "STAPÍL AÐ EILÍFU" Ef Sigríður getur hætt að drekka þá er alveg eins hægt að leggja niður AA samtökin... Ekkert illa meint sko!!!
Jæja sjáumst á Nasa í kvöld...
19nóvember
Í dag eru 267 dagar í Þjóðhátíð... vildi bara minna fólk á það...og Ólöf ég legg til að við Sigríður verðum nú með þér Yfirbittunni í húsi næstu þjóðhátíð...??? En já ein edrú helgin enn og ekkert nema jólagjafainnkaup um helgina. ÉG skrapp með Kollu edrú vinkonu minni í smárann áðan.. gríðalega skemmtilegt..þar var auðvitað öll helvítis þjóðin og ekki hægt að þverfóta fyrir þessu andsk....
Ætluðum að kaupa húfu á mig en ekkert gekk þar sem allar húfur eru með einhverju blóma drasli á eða palliettum... djöfulli ljótt!!! Jæja langaði bara aðeins að krota hérna fyrir hana Ólöfu mina þar sem hún er sú EINA sem KVITTAR fyrir sig.
Takk fyrir það Ólöf min
Sælaðsinni....
10nóvember
Já nú reynir á.....maður þykist ætlað vera EDRÚ um helgina
(sé það gerast) Ég meina ef Kolla getur verið edrú þá hlýt ég að geta það
Allavega ég veit það er sálarball á nasa... en það ætlar engin að djamma þannig að ég neiðist til að
vera heima
Ömurlegt ástand....!!!
Langaði barað láta vita af mér... sjáumst
07nóvember
Ég varð að setja inn þessa FALLEGU mynd af mér og Írisi...
Erum í THAILANDI tíu ára gamlar...
06nóvember
Jæja enn einn Sunnudagurinn og helgin bara ágæt. Skellti mér á ball á föstudaginn með Maju,Fríðu og Ingibjörgu... skunduðum á Players þar sem Jónsi hélt uppi stuðinu og get ekki sagt annað en að þetta hafi verið frábært ball...... var komin snemma heim reyndar og vaknaði með dótturinni kl: 8:00 á slaginu!!!!. En við lögðum okkur nú aftur til tíu.. þá gerði ég mér grein fyrir því að taskan mín varð eftir á Players og stelpan orðin veik :(
YNDISLEGT!!!! Þannig að við erum bara búnar að hanga heima alla helgina í líka þessu frábæra veðri...... Bið að heilsa í bili...
P.s. Ég tók þá frábæru ákvörðun áðan og setti í þvottavél sem er nú ekki frásögufærandi.. haldiði að ég hafi ekki fundið karlmanns peysu í fatahrúgunni á gólfinu.. ég veit ekki hvaðan hún kom en ég hef nú ekki verið við karlmann kennd síðan....... já segi ekki meir... ætli ég hafi ekki rifið einhvern karmann úr peysunni á djamminu og farið með hana heim.. vaknað svo um morguninn og haldið að ég hafi tekið einhvern með mér heim... Hvern er ég að blekkja???
31október
Jæja ég er að reynað koma einhverju inná þessa síðu... er samt ekki alveg að nenna því.... Veit svo ekkert hvað ég á að krota hérna það er ekki einsog það gerist mikið i hinu daglega lífi.. nema kannski um helgar.. þær eru nottla alltaf FULLAR af einhverri steypu... T.d. síðasta helgi ég man ekkert eftir henni. En það er nú bara einsog alltaf!!! Stefnan á næstu helgi var að reynað halda sér edrú en svo frétti ég af afmæli og get nottla ekki látið mig vanta þar.. Talandi um afmæli það eru ekki margir dagar i mitt og verður veislan haldin á hinum góða stað Players.. Við verðum 4 saman með veislu, Ég, Sigga Dísa; Fannsi og Ingunn..... og þeir sem kannast eitthvað við okkur vita hvernig þetta verður.. Allt fljótandi í EAS drykkjum og Orku stöngum... Herbalife og grænu te... jájá ekki uppá neitt annað að bjóða þegar maður er svona fitt og vel á sig komin...
Yfir í annað... sorgar dagur í vinnunni í dag... 30 manns sagt upp!!
Ekki skemmtilegt fullt af góðu fólki farið..
En heyrumst síðar... BLÆ..